12. nóv. '08 | Reykjavík | sigga
11.nóvember 2008
Já mín var hvorki meira né minna en 28 vetra í dag, reyndar er afmælisdagurinn minn liðinn nú þar sem ég rita þetta eftir miðnætti. En það breytir því ekki að ég er orðin 28 vetra djúsí belja og verð það næsta árið. Hvað ætli þetta ár beri svo í kuntu sér, maður spyr sig?

Ástarkveðjur til ykkar allra!

Lífið er gott og guð er góður.

- Siggí stardust

Komment: 0

Skrifa við 11.nóvember 2008


Stóra systir og stóri bróðir með litla kút :)
27. okt. '08 | Reykjavík | sigga
Sæll vertu vetur konungur og litli frændi
Fyrsti vetrardagur var í gær og hann var svo sannlega kaldur. Við hlupum með Snæfríði í gegnum húsdýragarðinn í kuldanum og fengum okkur svo rjúkandi heitt kakó með rjóma í boði Reykjavíkurborgar. Stefnan var svo tekin á skauta með Snæfríði en hún var svo innilega öfugsnúin einmitt þá svo við ákváðum að fyrsta skautaferðin yrði að bíða betri tíma. Áttum samt góðan dag heima á lörvägen og fórum svo í mótmælagöngu Kolfinnu Baldvins niðrí bæ. Snæfríður var svoltið hissa á öllu þessu öskrandi fullorðna fólki sem vildi skilja hann Davíð útundan en hafði samt lúmskt gaman af þessu.

Dagurinn í dag er góður dagur. Helena systir og Valdi voru að eignast lítinn strák í morgun, 15 merkur og 51 sm. Til hamingju með litla strákinn ykkar. Ahhhh hvað það verður yndilslegt að fara og sjá hann og vonandi sem allra allra fyrst. Guðjón mágur á líka afmæli í dag jeiiii innilega til hamingju með daginn Guðjón.
Til hamingju með litla brósa Júlía og Kristján, loksins lét hann sjá sig ;)

- Lífið er gott og guð er góður!!


siggí stardust

Komment: 0

Skrifa við Sæll vertu vetur konungur og litli frændi

8. sept. '08 | Reykjavík | sigga
Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr!

Erum komin heim og það ku vera kalt.

Til hamingju með daginn elsku afiskafi :*

Luv,
Sigga, Halez & Snö

Komment: 0

Skrifa við Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr!


30. ág. '08 | Berlín | sigga
Heimkoma
Klukkan er tíu á laugardagsmorgni, sólin skín úti og Hallur er farin út að hlaupa. Við Snæfríður Hekla erum tvær heima og orðnar góðar vanar á þremur hæðum með svölum og garði. Snæfríður hljóp út um svalarhurðina þegar ég opnaði út áðan og við önduðum að okkur fersku berlínarloftinu næstsíðasta morguninn okkar hér í borg.
Ég á eftir að sakna hennar blessunarinnar og vonandi munum við fjölskyldan búa aftur hér. Snæfríður var rétt í þessu að segja að við séum búin að vera lengi í belrínarhúsinu okkar en mér finnst við einmitt búin að vera svo stutt í Berlínarhúsinu okkar. Þetta sumar er samt sem áður búið að vera yndislegur tími fyrir okkur öll og við kveðjum Berlín með bros á vör.

Planið í dag er að njóta, sóla sig nakin í Tiergarten og fara út að borða í kvöld. Við leggjum svo í hann frekar snemma í fyrramálið og lendum á Íslandi um kaffileytið. Ég hlakka mjög til að sjá svipinn á Snæfríði þegar við lendum heima, þegar við komum heim á laugaveginn og þegar við förum aftur í leikskólann á mánudaginn. Hún er búin að þroskast mikið í sumar og kemur heim eins og ný eftir sumardvöl í berlín, hróaskelduhátíð og marga góða tónleika.

“Þetta er einhver andskotinn, ég get þetta ekki” heyrðist rétt í þessu í Snæfríði sem á í basli við sápukúlurnar úti á svölum. Ætla að fara að hjálpa henni og koma mér svo í hlaupagallann og njóta þess að hlaupa síðasta hringinn í Berlín þetta sumarið.

Góðar stundir!

Luv,
Siggí Lion

Komment: 0

Skrifa við Heimkoma
 



notandanafn

lykilorð
 

leitarorð

 





Familía og Vinir :
Hreysið
Ninna & Seton
Bebba
Elsa
Robbi K
Krappetíkrapp Farbrorsins

Blessuð börnin :
Warén fjölskyldan
Sóley Rán
Magnús Thor
Óskar Óðinn
Sóldís Anna
Elsa Mjöll

Tónlist :
Bloodgroup
Hotpants
Djór
Skátar
VAX
Mónitor
Rjóminn


Heimsóknir: 34291